Náttúrlegt sog
Pumpan líkir eftir náttúrulegu sogi ungabarns. Þar sem barnið örvar fyrst brjóstið til að stuðla að losunarviðbragði og barnið sýgur þá hraðar og styttra í einu. Þegar losun hefst byrjar barnið að sjúga lengur og hægar. Brjóstapumpan hermir eftir þessu náttúrlega sogi. Í fasa 1 þá pumpar hún hratt og stutt til þess að örva og í fasa 2 þá pumpar hún hægar til að ná sem mestri mjólk. Einfalt er að skipta aftur í örvunarfasa.
Auðveld í notkun
Einföld í notkun og auðvelt að skipta á milli fasa. Skjárinn sýnir hversu lengi þú hefur pumpað sem auðveldar þér að halda yfirlit um pumpunina.
Ef þú notar rafhlöðu sýnir hann hversu mikið er eftir af rafhlöðunni, hvaða stillingu á sogkrafi þú ert að nota og í hvaða fasa þú ert.
10 stillingar eru á sogkrafti og auðvelt að stilla sogkraftinn
Í fasa 1 er krafturinn frá 60 til 187mmHg og í fasa 2 er hann 60 til 265,5 mmHg
Þægindi í fyrirrúmi
Silíkon skjöldurinn er einstaklega mjúkur til að vernda geirvörtuna. Innri hringurinn er 20.4mm í þvermál og ytri hringurinn er 86mm í þvermál.
Hvernig er best að ná sem mestri mjólk?
- Nuddaðu brjóstið í 1-2 mínútur áður en þú notar pumpuna
- Gott er hita Chicco thermogel púða og láta á brjóstin áður en þú pumpar.
- Hafðu barnið nálægt þér eða eitthvað með lykt barnsins.
- Komdu þér vel fyrir og reyndu að slaka á meðan þú pumpar.
- Ef þú færð losunarviðbragð meðan þú ert ennþá í fasa 1 skiptu yfir í fasa 2.
- Notaðu þann sogkraf sem þér finnst þæginlegastur. Að pumpa á ekki að vera sársaukafult.
Þægileg í notkun
Slangan úr pumpunni er löng sem leyfir þér að koma að í þægilega stöðu meðan þú pumpar. Hægt er að setja rafhlöðu í pumpuna og þannig nota hana þráðlaust
Þú finnur þessa vöru líka hjá þessum aðilum: