Almennir skilmálar

UPPLÝSINGAR UM SELJENDA
Gullskógar ehf eru umboðsaðili Chicco á Íslandi. kt. 701202-2790, vsk nr. 77642 til húsa við Grænatún 1 Sími: 412-9900 , tölvupóstur:gullskogar@gullskogar.is

Ábyrgðarskilmálar
Gullskógar ehf er viðurkenndur endursöluaðili allra vörumerkja sem verslunin hefur upp á að bjóða. Allar vörur hafa 2 ára umboðsábyrgð og öll þjónusta fer í gegnum Gullskógar ehf.

Allar vörur sem Gullskógar ehf selur hafa tveggja ára ábyrgð, nema annað sé tekið fram.

SKILAFRESTUR
Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan er endurgreidd í formi inneignar innan 10 daga eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar, nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.Vörum er einnig hægt er að skila og skipta í vöruhúsi okkar við Grænatún 1.

Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum, sessum né base-um. Við bjóðum upp á að máta bílstólinn/sessuna/baseið í bílinn ef þess er óskað til að ganga úr skugga um að hann passi.

ÚTSÖLUVÖRUR 
Útsöluvörum er ekki hægt að skila og ekki er hægt að skipta þeim nema í aðrar útsöluvörur.

GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Seljandi notar örugga greiðslusíðu. Greiðslur með Debet- og Kreditkorti fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín.  Greiðsla með greiðslukort fer í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa í á sölusíðu Gullskóga ehf. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu.

Einnig er hægt staðgreiða með millifærslu með því að setja pantananúmer sem lýsingu greiðslu, Pei eða Netgíró.

ÓGREIDDAR PANTANIR 
Pantanir sem eru ógreiddar þurfa að vera greiddar innan 3 klukkutíma frá kaupum, ef ekki er búið að ganga frá greiðslu á þessum tíma verður pöntunin ógild. 

EIGNARRÉTTARFYRIRVARI 
Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu. 

TRÚNAÐUR 
Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin. 

LAGAÁKVÆÐI 
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt . Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.

Afhendingarskilmálar

Við erum með verslun við Grænatún 1, 200 Kópavogi sem er opin alla virka daga milli 08:30-16:30

Afgreiðsla á vörum:
Frí heimsending er á höfuðborgarsvæðinu þegar verslað er fyrir 15.000 kr eða meira. Við keyrum vörunnar sjálf út samdægurs ef pöntun berst fyrir klukkan 14:00 virka daga.

Sendingar innan Íslands eru sendar með Íslandspósti og Dropp skv verðskrá

Allar pantanir eru afgreiddar innan 24 klukkustunda. Ef pantað er um helgi, fer pöntunin frá okkur fyrsta virka dag.
Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar við afgreiðum vöruna frá okkur.

Þú getur einnig nálgast vörurnar á virkum dögum í verslun okkar við Grænatún 1, 200 Kópavogi milli klukkan 08:30-16:30. Ef vara er pöntuð fyrir klukkan 15:00 er í flestum tilvikum hægt að nálgast hana samdægurs.

Pantanir sem eru ógreiddar þurfa að vera greiddar innan 3 virka daga ef ekki er búið að ganga frá greiðslu á þessum tíma verður pöntunin ógild.

Bílstólar
Gullskógar ehf mælir ekki með því að senda bílstóla og/eða base með flutningsaðila til að tryggja að vara hafi ekki fallið eða fengið högg á sig þegar hún afhendist kaupanda. Við mælum frekar að vinur eða ættingi sæki umræddar vörur til okkar í vöruhús okkar og komi áleiðis til kaupanda.

Skilafrestur
Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum, sessum né base-um. Við bjóðum upp á að máta bílstólinn/sessuna/baseið í bílinn ef þess er óskað til að ganga úr skugga um að hann passi.

Outlet vörur
Í Chicco Outlet er hægt að versla vörur á afslætti. Þar eru vörur sem eru að hætta, við eigum við eftir fá eintök, sýningareintök eða vörur í gölluðum/rifnum pakkningum.Athugið að öll kaup í Chicco Outlet eru endanleg. Vörur keyptar í Chicco Outlet hafa hvorki skila- né skiptirétt.

Útsöluvörur
Útsöluvörum er ekki hægt að skila og ekki er hægt að skipta þeim nema í aðrar útsöluvörur.

Fyrir aðrar vörur gildir 14 daga skilafrestur að því tilskyldu að varan hafi ekki verið notuð og henni sé skilað í góðu ákomsigulagi með öllum merkjum og í upphaflegri pakkningu. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið ef skila á vöru.Varan er endurgreitt ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.