Chicco Mommy Pod Hreiður 4-1 – Olive- FORSALA KEMUR 2.OKTOBER

23.900 kr. 19.120 kr.

FORSALA KEMUR 2.OKTOBER

Ungbarnahreiður fyrir fyrstu mánuðina: Veitir nýburanum umlykjandi og þægilegt rými. Mommy Pod hentar sérstaklega vel með Chicco Next2Me rúmi og hægt að nota það frá fæðingu

Mommy Pod vex með  barninu.Hægt er að fjarlægja neðri hluta hreiðursins til að skapa meira rými og laga það að lengd barnsins.

Hægt að nota sem magapúða fyrir „tummy time“ : Fjarlægðu efri og neðri hluta Mommy Pod og breyttu því magapúða sem veitir barninu þægilegan stuðning við magalegu og hjálpar því að halda hentugri stöðu meðan á æfingum og leik stendur.

Að liggja á maganum undir eftirliti styður við hreyfiþroska barnsins og hjálpar því að styrkja háls, axlir og efri hluta líkamans.

Leikslá með mjúkum, tvíhliða leikföngum vekur áhuga barnsins og hvetur það til að skoða, teygja sig og hreyfa.

Sérstakt hlífðarinnlegg er í neðri hluta ungbarnahreiðursins til að hjálpa til við að verja púðann gegn bleytu og óhreinindum. Hagnýt lausn sem auðveldar þrif og daglega umhirðu.

Mommy Pod er framleitt úr 100% lífrænni bómull sem er mjúk og mild við viðkvæma húð nýbura og ungbarna.

Bómullarnet á mikilvægum svæðum stuðlar að góðu loftflæði og varnar því að barnið svitni.

Mommy Pod aðlagast þroska barnsins og auðvelt er að fjarlægja eða stilla einstaka hluta eftir þörfum.

 

Í boði sem biðpöntun