Chicco Pelahitari með sótthreinsun

16.990 kr.

Chicco pela/krukkuhitari og sótthreinsitæki. Sameinar hitara og sótthreinsun í einu tæki.  Hægt að láta hann afþýða mjólk og krukkumat.

  • Hitar bæði pela og krukkumat
  • Hitar bæði brjóstamjólk og þurrmjólk
  • Hitar 150ml pela á ca 3 mín*
  • Hitar brjóstamjólk hægar til að viðhalda næringunni í mjólkinni.
  • Sótthreinsar 1 pela og aðra smáhluti eins og pelatúttu og snuð á 5 mínútum.
  • Sótthreinsar og útrýmir 99,9% af bakteríum og sýklum.
  • Aðlagaðu pelahitarann að þínum þörfum. Er með 27 mismunandi kerfi til að hita matinn/mjólkin eftir t.d stærð pelans, hita mjólkurinnar, tegund fæðu , þurrmjólk, brjóstamólk eða mauk og fleira.
  • Hægt að láta hitarann afþýða brjóstamjólk og mauk. Afþýðir á sérstöku kerfi sem viðheldur eiginleikum brjóstamjólkurinnar.
  • Hægt að nota með flestum pelum á markaðinum, jafnvel pelum með botni sem hægt er að fjarlæga eins og Perfect5 pelinn og fleiri.
  • Heldur pelanum/matnum heitum í allt 1 klukkustund.
  • Slekkur sjálfur á sér þegar hitun/sótthreinsun er lokið.
  • Pípir þegar hann hefur lokið hitun/sótthreinsun.
  • Þarft ekki að bíða með að nota hitaran til að hita annan pela. Frábært hitari fyrir mæður með fjölbura.
  • Kemur með körfu til að auðvelda að taka pelan/krukkuna úr hitaranum

*Miðað er við 150ml Chicco Natural Feeling með þurrmjólk sem er á herbergishita og tíminn sem tekur til að hita hana í 37°.  Það er alltaf mismuandi eftir pelatýpum hversu lengi tekur að hita pela.

Við bjóðum upp á gjafainnpökkun. 400kr fyrir einn pakka. Viltu að við setjum merkimiða ? Skrifaðu þá stutt skilaboð hér fyrir neðan


  • Gjafainnpökkun